góðu fréttirnar

p { margin-bottom: 0.08in; }

Jesús sagði við þá: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Áður en Abraham fæddist, er ég.``


Jesús sagði þeim: ,,Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.


Nú talaði Jesús aftur til þeirra og sagði: ,,Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins.``


Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig, mun frelsast, og hann mun ganga inn og út og finna haga.


Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.


Jesús mælti: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.


Jesús segir við hann: ,,Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.


,,Ég er hinn sanni vínviður, og faðir minn er vínyrkinn.



Jon 1:12En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans.

13 Þeir eru ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði fæddir.


Vér biðjum þess, að þér mættuð fyllast þekkingu á vilja Guðs með allri speki og skilningi andans,

svo að þér hegðið yður eins og Drottni er samboðið, honum til þóknunar á allan hátt, og fáið borið ávöxt í öllu góðu verki og vaxið að þekkingu á Guði.

Mætti hann styrkja yður á allan hátt með dýrðarmætti sínum, svo að þér fyllist þolgæði í hvívetna og umburðarlyndi og getið með gleði

þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.

Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.


Í honum eigum vér endurlausnina, fyrirgefningu synda vorra.

Hann er ímynd hins ósýnilega Guðs, frumburður allrar sköpunar.

Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega, hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt er skapað fyrir hann og til hans.

Hann er fyrri en allt, og allt á tilveru sína í honum.

Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið, frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.

Því að í honum þóknaðist Guði að láta alla fyllingu sína búa

og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum, með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.


Og yður, sem áður fyrri voruð fráhverfir Guði og óvinveittir honum í huga yðar og vondum verkum,

yður hefur hann nú sátta gjört við sig með dauða Krists í jarðneskum líkama. Hann vildi láta yður koma fram fyrir sig heilaga og lýtalausa og óaðfinnanlega.

Standið aðeins stöðugir í trúnni, grundvallaðir og fastir fyrir og hvikið ekki frá von fagnaðarerindisins, sem þér hafið heyrt og prédikað hefur verið fyrir öllu, sem skapað er undir himninum, og er ég, Páll, orðinn þjónn þess.


run from the cure

Afhverju er kannabis ólöglegt hér á landi? hvað er það sem veldur því að það sé bannað?

Guð gefur kraft

Guð gefur þér kraft til þess að vera ríkur.

5 Mósebók 8;18
Minnstu heldur Drottins Guðs þíns, því að hann er sá, sem veitir þér kraft til að afla auðæfanna, til þess að hann fái haldið þann sáttmála, er hann sór feðrum þínum, eins og líka fram hefir komið til þessa.


Sú hugmynd eða kenning að heilagleiki er að vera fátækur og peningar og ríkidæmi er bölvun sem kom frá Guði. Þessi kenning væri frekar frá kölska sjálfum en Guði. Það er kölski sem vill hafa þig fátækan. Hann stelur frá þér og vill hafa þig fátækan í anda jafnt og í þínu dauðlega lífi.En sannleikurinn er sá að Guð vill að þú auðgist og að líf þitt beri ávöxt. Og hann gerir það með að gefa þér kraft til þess að afla auðæfanna.

Að hafa þennan kraft merkir, að ef þú ert í viðskiptum, þá færðu sniðugar hugmyndir sem munu færa fyrirtækinu þínu mikla innkomu. Og sem launþegi þá muntu fljótlega fá stöðuhækkun vegna þess að yfirmenn munu virða það sem þú gerir fyrir fyrirtækið.

Guð vill blessa þig eins og hann blessaði Abraham í öllum hlutum. (gen 24;1) - Abraham var gamall og hniginn að aldri, og Drottinn hafði blessað Abraham í öllu.
(35)Drottinn hefir ríkulega blessað húsbónda minn, svo að hann er orðinn auðmaður. Hann hefir gefið honum sauði og naut, silfur og gull, þræla og ambáttir, úlfalda og asna.
Sonur Abrahams, Ísak – (gen 26:12) Og Ísak sáði í þessu landi og uppskar hundraðfalt á því ári, því að Drottinn blessaði hann.
13 Og maðurinn efldist og auðgaðist meir og meir, uns hann var orðinn stórauðugur.
Jakob fékk sömu blessun og Isak og Abraham. (gen 30:43) Og maðurinn varð stórauðugur og eignaðist mikinn fénað, ambáttir og þræla, úlfalda og asna.

Loforð Guðs um að niðjar Abrahams myndi verða erfingjar heimsins, er ekki byggt upp á hversu hlýðinn þú ert gegnvart boðorðunum 10,(gal 3;29) En ef þér tilheyrið Kristi, þá eruð þér niðjar Abrahams, erfingjar eftir fyrirheitinu.
(rom 4;13-16) Ekki var Abraham eða niðjum hans fyrir lögmál gefið fyrirheitið, að hann skyldi verða erfingi heimsins, heldur fyrir trúar-réttlæti.
14 Ef lögmálsmennirnir eru erfingjar, er trúin ónýtt og fyrirheitið að engu gjört.
15 Því að lögmálið vekur reiði. En þar sem ekki er lögmál, þar eru ekki heldur lögmálsbrot.
16 Því er fyrirheitið byggt á trú, til þess að það sé af náð, og megi stöðugt standa fyrir alla niðja hans, ekki fyrir þá eina, sem hafa lögmálið, heldur og fyrir þá, sem eiga trú Abrahams. Hann er faðir vor allra.

Vinir, Guð vill að við séum afkastamikil, ekki bara að innanverðu heldur líka að utan. (3 joh 1;2) “Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllum hlutum og að þú sért heill heilsu, eins og sálu þinni vegnar vel.” Ef þú ert peningalaus í dag, mundu að Guð vill gefa þér kraft til þess að afla auðs. Þannig að Hann geti staðfest sáttmála sinn við þig.


Um bloggið

ibbets

Höfundur

ibbets
ibbets
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 161

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband